NACRESWEATER - Icelandic

60,00 kr
Íslenska útgáfan Style NACRESWEATER er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður. Stærðartafla Stærðir  XS      S       M  ...
Available:
In stock
Quantity:
- +
Fast & Reliable Shipping
Delivered with Postnord

Íslenska útgáfan

Style NACRESWEATER er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

Stærðartafla

Stærðir  XS      S       M       L      XL     2XL     3XL

Lengd á bol frá handarkrika og niður (framhlið)  

31    (33)     35   (36)    37    (38)     38,5

Lengd á bol frá handarkrika og niður (bakhlið) 

33,5  (35,5)  37,5 (38,5)  39,5  (40,5) 41

Lengd á ermum frá handarkrika og niður             

51     (53)   55   (56)  56,5  (56,5)  56,5

Yfirvídd                                                                        

57    (61)     65    (69)    73     (77)       81

Uppgefin mál eru tekin af peysunni fyrir þvott. Peysan getur stækkað örlítið eftir þvott. Peysan er aðsniðin, en gefur vel eftir og nánast tvöfaldast í stærð um sirka 40 - 50 cm. Ég mæli með að þú prjónir þína “venjulegu” stærð.

Hæfni : Prjóna slétt og brugðið. Prjóna í hring. Prjóna úrtöku og útaukningu.

Efni

Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

Organic merino: 5 (5) 6 (6) 7 (7) 7

Hringprjónar 3 mm í 40 & 80 cm

5 x prjónamerki

2 x snúrur, aukaprjónar eða afgangsgarn til að geyma lykkjur 

Saumnál til að fela enda

Prjónfesta  

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 36 L og prj * 2 L sl, 2 L br* samtals 32 umf á prj 3 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.

Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.

Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna. 

Gott að hafa í huga

Peysan er prjónuð ofan frá og niður í hring með 2 x 2 stroffi. Fitjað er upp fyrir kraganum/ berustykkinu og svo deilt upp í ermar og bol þegar komið er að handakrikunum. Ermarnar og bolurinn eru prjónið áfram í hring í sitthvoru lagi með úrtöku, en á bolnum er einnig prjónuð útaukning. Bolnum er deilt upp í tvo hluta og prjónaður fram og til baka þegar opnað er fyrir klaufinni á sitt hvorri hliðinni. Ermarnar eru prjónaðar í fullri lengd áður en þið sleppið lykkjunum svo þær rakni upp. Til að búa til “destroyed effect” eru lykkjurnar fjarlægðar af prjóninum, þú getur togað í þær til að þær rakni upp og þrætt síðan í gegnum þær með garni til að tryggja að þær rakni ekki meira upp. Horfið á youtube myndbandið hérna áður en þið “fellið af” á ermunum:

https://youtu.be/jzIcMNoEnbM?si=9L50qIkxCVjhl9mh

Það er einnig hægt að fella af venjulega og sleppa því algjörlega að vinna með “destroyed effect”, þetta er ykkar peysa og Nacre sweater kemur líka vel út með venjulegum frágangi.

Uppgefið garn er miðað við meðaltal og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Organic DK er yfirleitt ekki prjónað á prjónum 3 mm (uppgefin prj stærð er 4 mm). En til að tryggja að peysan haldi lögun og sitji vel, sérstaklega á öxlunum, ákvað ég að fara niður um prj stærð svo hún er þétt og stíf. Þegar prjónað er með handlituðu garni er ótrúlega mikilvægt að blanda hespunum saman svo að ekki séu litaskil þegar prjónað er með tveimur eða fleiri hespum. Í þessu youtube myndbandi er hægt að sjá hvernig ég blanda hespunum saman.

https://www.youtube.com/watch?v=CtxBXfi5g6w

Lesið yfir uppskriftina áður en þið byrjið að prjóna.

Shipping & Returns

We ship from Copenhagen, Denmark, with care and intention — just like our products.

Shipping within Denmark is 50 DKK and international shipping is 132 DKK.

We offer free shipping on orders over:

• 600 DKK in Denmark

• 1200 DKK internationally

Returns & Refunds

Changed your mind? No problem. Most items can be returned within 14 days of purchase as long as they’re in original condition — unworn, unwashed, with tags intact.

Please note: Made-to-order hand-knitted styles and knitwear patterns are non-refundable.

You’ll receive a refund (excluding shipping) once we’ve received your return and confirmed everything is in good shape. Return costs are your responsibility.

NACRESWEATER - Icelandic
60,00 kr
- +
icon_policy
Affordable Shipping
Low shipping rates — no hidden fees, just easy delivery wherever you are.
icon_policy
Designed by Thelma Steimann
Every piece is crafted with bold colors and fearless expression.
icon_policy
Handmade Vibes, Always
Each piece is made with care and creative energy. Wear art — not trends.
icon_policy
Secure Checkout
Fast, protected payments every time. Your info stays safe with us.

RECENTLY VIEWED PRODUCTS