DUNAVEST - Icelandic

60,00 kr
Íslenska útgáfan Style DUNAVEST er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður. Stærðartafla Stærðir (cm)    XS   (S)   M   (L)  ...
Available:
In stock
Quantity:
- +
Fast & Reliable Shipping
Delivered with Postnord

Íslenska útgáfan

Style DUNAVEST er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

Stærðartafla

Stærðir (cm)    XS   (S)   M   (L)   XL   (2XL)

1. Yfirvídd   

84  (88) 92 (96) 100 (104)

2. Lengd á bol 

55 (56,6) 58 (59,5) 60,5 (61,5)

Málin eru byggð á vestinu fyrir þvott, málin geta breyst eftir að vestið hefur verið þvegið. Hafið í huga að vestið á að vera vítt í sniðinu og hægt er að aðlaga ummálið aðeins með að staðseningu á tölunum.

Hæfni : Meðalþekking á prjónskap

Efni

Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

Organic merino DK: 4 (4) 4 (5) 5 (5)

Hringprjónar 4 mm í 60/80 cm.

5 x sokkaprjónar 4 mm fyrir vasa og lista
Saumnál
Prjónamerkingar
4 x stórar öryggisnálar eða þráður til að geyma L sem hvíla. 6 x tölur 2 cm

Prjónfesta

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu.
Fitjið upp 20 L á prjóna 4 mm og prjónið klukkuprjón (án uppsláttar) 1 umf: prj allar L slétt. 2 umf : 1 L slétt, et ; 1 L brugðin, prjónið 1 L slétt í lykkjuna undir næstu lykkju.
3 umf : 1 L slétt, et; prjónið 1 L slétt í lykkjuna undir næstu lykkju, 1 L brugðin.
Endurtakið umf 2 & 3 eða þar til 35 umf fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

Gott að hafa í huga

Vestið er prjónað neðan frá og upp, frá réttu- og röngunni. Þrjú af sex hnappagötum eru prjónuð á bolinum á vestinu. Á bolnum er einnig opnað fyrir vösunum og er lykkjurnar látnar hvíla á þangað til vasarnir eru prjónaðir. Vestið er prjónað sem eitt stykki eða þar til opnað er fyrir handveg, þar er vestinu deilt upp fyrir hægri-, bak- og vinstri hlið. Hægri og vinstri hlið eru tengdar saman eftir að hálsmálið hefur verið prjónað, og lykkjaðar saman við bakhlið, þegar bakhliðinn hefur verið prjónuð. Vasarnir eru prjónaðir á 4 sokkaprjónum í hring, og listi fyrir vasa er prjónaður frá réttunni á vestinu. Listinn er prjónaður frá réttu og röngu, og lykkjaður saman við vesti á hverri hlið og innanfrá, svo listinn verður tvöfaldur af þykkt. Prjónað er fyrir stroff í hring á handveg með því að sækja kantlykkjur við handveg í vestinu. Listinn innan á vestinu er prjónaður þegar vestið hefur verið tengt saman við bakhlið. Listinn

er prjónaður sléttur með tvöföldu prjóni, og þar sem eingöngu er unnið með eitt band, er önnur hver lykkja færð yfir óprjónuð, síðasta lykkjan í umferðinni er prjónuð saman með kant lykkjunni á vestinu. Á listanum er opnað fyrir síðustu þrjú hnappagötin á hægri hlið sem prjónuð eru samhliða þeim sem eru á vestinu.

Vestið er prjónað með klukkuprjóni (án uppsláttar), þ.e.a.s. slétta L úr fyrri umf er prjónuð slétt.

Lesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast myndefni til að sjá frekari útskýringar á verkefninu. Myndefnið er hægt að finna inn á heimasíðunni www.thelmasteimann.com.

Magn af garni er miðað við meðaltal og er þar af leiðandi mismunadi fyrir hvern og einn. Hægt er að prjóna vestið með hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Organic DK.

Shipping & Returns

We ship from Copenhagen, Denmark, with care and intention — just like our products.

Shipping within Denmark is 50 DKK and international shipping is 132 DKK.

We offer free shipping on orders over:

• 600 DKK in Denmark

• 1200 DKK internationally

Returns & Refunds

Changed your mind? No problem. Most items can be returned within 14 days of purchase as long as they’re in original condition — unworn, unwashed, with tags intact.

Please note: Made-to-order hand-knitted styles and knitwear patterns are non-refundable.

You’ll receive a refund (excluding shipping) once we’ve received your return and confirmed everything is in good shape. Return costs are your responsibility.

DUNAVEST - Icelandic
60,00 kr
- +
icon_policy
Affordable Shipping
Low shipping rates — no hidden fees, just easy delivery wherever you are.
icon_policy
Designed by Thelma Steimann
Every piece is crafted with bold colors and fearless expression.
icon_policy
Handmade Vibes, Always
Each piece is made with care and creative energy. Wear art — not trends.
icon_policy
Secure Checkout
Fast, protected payments every time. Your info stays safe with us.

RECENTLY VIEWED PRODUCTS