HALFSLEEVEJAIN - Icelandic

60,00 kr
Íslenska útgáfan Style HALFSLEEVEJAIN er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður. Stærðartafla XS  (S)  M  (L)  XL  (XXL) 1. Yfirvídd (brjóstummál) 106 ...
Available:
In stock
Quantity:
- +
Fast & Reliable Shipping
Delivered with Postnord

Íslenska útgáfan

Style HALFSLEEVEJAIN er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

Stærðartafla XS  (S)  M  (L)  XL  (XXL)

1. Yfirvídd (brjóstummál)

106  (108)  110 (114) 116  (118)

2. Lengd á bol til handveg

26 (27) 28 (29) 30 (31) 

3. Lengd á ermi til handveg        

46 (47) 48 (48,5) 48,5 (48,5) 

Málin eru byggð upp eftir peysum fyrir þvott ; peysan getur breyst í málum við þvott, fer allt eftir því hvernig hún er þvegin.

Hæfni : Byrjandi

Efni

Angel light lace : 1/1/1/1/1/1

Hand lituð Angel light lace frá Thelma Steimann, garnið er létt og silki mjúkt. Garnið samanstendur af 80% extra fínni merino ull og 20% silki. Angel light lace er fullkomið garn til að prjóna með Kid silk mohair til að bæta styrk í garnið. Hver hespa inniheldur um það bil 100g / 800 m.

Kid silk mohair : 3/3/4/4/4/4

Handlitið silkimohair frá Thelma Steimann, garnið er blanda af burstuðu 72% mohair og 28% silki , meðallengd ca. 420m/50gr í hverri hespu. Silkimjúk áferð og þægileg ull til að vinna með.

Uppskriftin var hönnuð til að endurnýta restar af silk mohair garni, þar af leiðandi er valfrjálst að blanda saman litum eftir því sem við á. Peysan vegur um 100 - 200 gr . Mælt er með að notast við litríkt garn, þá sérstaklega í Angel light lace til að skapa fallegan heildarlit á milli lita skiptana. Kíkið eftir innblæstri af myndum í röndóttu útgáfunni af Jainsweater.

Hringprjónar 80 og 60/40 cm , 8 mm.

Hringprjónar 40 og 80 cm , 12 mm.

Sokkaprjónar 4 – 5 stk ; 8 mm.

Saumnál og 3 x öryggisnælur.

6 x prjónamerki

Prjónfesta

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef við á.
10 x 10 cm = fitjið upp 9 L með 4 þráðum, 1 Angel light lace og 3 þráðum af Kid silk Mohair og prj 12 umf á prj 12 mm.
Ef prufan er of lítil, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prufan er of stór, skiptið yfir á minni prjóna.

Gott að hafa í huga

Peysan er prjónuð með 4 þráðum af uppgefnu garni, byrjað er neðanfrá og prjónað upp. Bolurinn og ermarnar eru prjónuð hvert fyrir sig í hring og tengd saman við handveg. Þar eftir er berustykkið prjónað fram og tilbaka og hálsmálið er prjónað á peysuna eftir að berustykkið hefur verið prjónað.

Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og garn sem gefið er upp í uppskrift.
Fullkomin peysa fyrir afgangaprjón !

Gott að hafa í huga fyrir afgangaprjón:

Skiptið um garn samkvæmt aðferð; Í hverri 3-5 umf ; klippið af 1 lit og bætið við nýjum lit í staðin ; hafið hugfast að það eru alltaf 3 mismunandi litir af mohair og 1 af Angel light Lace, Kid silk mohair endarnir geta verið þæfðir saman svo ef sirka 10 cm endi er nuddaður saman við 10 cm af byrjun á nýjum lit; hárin á þráðunum ættu að festast saman svo að frágangur ætti að verða auðveldari. Angel light lace ; hnýtið saman enda. Verið ófeimin við að blanda saman litum með mikinn litamismun ; þú ert hönnuðurinn hér, svo ekki vera hrædd/ur við að fara út fyrir þægindaramman.

Shipping & Returns

We ship from Copenhagen, Denmark, with care and intention — just like our products.

Shipping within Denmark is 50 DKK and international shipping is 132 DKK.

We offer free shipping on orders over:

• 600 DKK in Denmark

• 1200 DKK internationally

Returns & Refunds

Changed your mind? No problem. Most items can be returned within 14 days of purchase as long as they’re in original condition — unworn, unwashed, with tags intact.

Please note: Made-to-order hand-knitted styles and knitwear patterns are non-refundable.

You’ll receive a refund (excluding shipping) once we’ve received your return and confirmed everything is in good shape. Return costs are your responsibility.

HALFSLEEVEJAIN - Icelandic
60,00 kr
- +
icon_policy
Affordable Shipping
Low shipping rates — no hidden fees, just easy delivery wherever you are.
icon_policy
Designed by Thelma Steimann
Every piece is crafted with bold colors and fearless expression.
icon_policy
Handmade Vibes, Always
Each piece is made with care and creative energy. Wear art — not trends.
icon_policy
Secure Checkout
Fast, protected payments every time. Your info stays safe with us.

RECENTLY VIEWED PRODUCTS