DUNAJUNIOR - Icelandic

60,00 kr
Íslenska útgáfan Style DUNAJUNIOR er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður. Stærðartafla Stærðir (cm)                ...
Available:
In stock
Quantity:
- +
Fast & Reliable Shipping
Delivered with Postnord

Íslenska útgáfan

Style DUNAJUNIOR er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

Stærðartafla

Stærðir (cm)                                      

2-3 (3-4) 4-5 (5-6) 6-7 (7-8) 8-9 (9-10) 10-11 (11-12)

1.Yfirvídd

72 (76) 81 (88) 91 (95.5) 100 (104) 107 (110)

2.Heildarlengd, mælt frá miðju baki (mínus kragi)

37 (39) 43 (44) 46 (49) 50 (51) 53 (54)

Uppgefin mál eru tekin af peysunni eftir þvott. Dunajunior er hönnuð með það í huga að vera rúmgóð í stærðum, með sirka 10 - 15 cm í umfram vídd.            

Hæfni : Hálft klukkuprjón, einnig kallað Brioche. Prjónað í hring með bæði útaukningu og úrtöku.              

Efni    

Það er bæði hægt að prjóna peysuna í Fine Organic saman með Angel lace long, eða Organic DK.

Fine merino perlugarn frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull.

Meðallengd ca. 365m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

Fine Organic : 2 (3) 3 (3) 3 (4) 4 (4) 4 (4)

Saman með:

Handlituðu Angel light lace 1200 m frá Thelma Steimann, garnið er létt og fullkomin blanda af 80% extra fínni merino ull og 20% silki. Garnið er fullkomið sem aukaþráður og gefur skemmtilegt litaspil.

Angel long lace : 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 (1)

Eða 

Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

Organic DK: 3 (4) 4 (4) 4 (4) 5 (5) 5 (5)

Hringprjónar 4 mm í 40 og 100/80 cm.

Saumnál til að fela enda.

Prjónamerki.

Umferða teljara.

Lykkju snúru til að geyma lykkjur.

Prjónfesta

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður er byrjað er á peysunni.

10 x 10 cm : Fitjið upp 14 L  á prj 4 mm og prj 44 umf af klukkuprjóni. 1 umf er 1 L sl, 1 L br. Í næstu umf og áfram er et *1 L br, prjónið 1 L slétt í lykkjuna*. Þvoið prufuna og leggið til þerris, prufan ætti að stækka við þvott. Hafið í huga að prjónfestan er prjónuð með klukkuprjóni en peysan er prjónuð með hálfu klukkuprjóni.

Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.

Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.            

Gott að hafa í huga    

Peysan er prjónuð ofan frá og niður í hring. Berustykkið er prjónað með raglan útaukningu og síðar deilt upp í ermarnar og bolinn. Ermarnar eru prjónaðar með úrtöku.

Peysan er prjónuð með hálfu klukkuprjóni eða brioche, það eru til nokkrar útfærslur af klukkuprjóni og ég mæli með því að prjóna með þeirri útgáfu sem þér finnst þægilegast að vinna með. Uppskriftin er skrifuð út frá því að slá upp og færa eina slétta lykkju óprjónaða yfir í annarri hverri umferð. Þegar úrtakan og útaukningin eru prjónaðar eru alltaf annaðhvort fjarlægðar tvær lykkjur eða bætt við tveimur lykkjum.

Shipping & Returns

We ship from Copenhagen, Denmark, with care and intention — just like our products.

Shipping within Denmark is 50 DKK and international shipping is 132 DKK.

We offer free shipping on orders over:

• 600 DKK in Denmark

• 1200 DKK internationally

Returns & Refunds

Changed your mind? No problem. Most items can be returned within 14 days of purchase as long as they’re in original condition — unworn, unwashed, with tags intact.

Please note: Made-to-order hand-knitted styles and knitwear patterns are non-refundable.

You’ll receive a refund (excluding shipping) once we’ve received your return and confirmed everything is in good shape. Return costs are your responsibility.

DUNAJUNIOR - Icelandic
60,00 kr
- +
icon_policy
Affordable Shipping
Low shipping rates — no hidden fees, just easy delivery wherever you are.
icon_policy
Designed by Thelma Steimann
Every piece is crafted with bold colors and fearless expression.
icon_policy
Handmade Vibes, Always
Each piece is made with care and creative energy. Wear art — not trends.
icon_policy
Secure Checkout
Fast, protected payments every time. Your info stays safe with us.

RECENTLY VIEWED PRODUCTS