ADELESWEATER - Icelandic
Category: HOME PAGE, ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style ADELEWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Í uppskriftinni er að finna 8 mismunandi mynstur : Flame, Groovie, Zebra, Leopard, Snake, Tattoo, Giraffe & Tribal
Stærðartafla
Stærðir (cm): XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL
Brjóstmál: 96 (101) 107 (115) 119 (122) 127
Ermalengd að handvegi: 44 (47) 48 (49) 50 (50) 50
Málin eru tekin af peysunni eftir að hún hefur verið þvegin. Peysan er hönnuð með jákvæðri yfirvídd eða, u.þ.b. 10–15 cm í minni stærðum, en smám saman minna í stærri stærðum.
Efni
Organic Merino DK frá Thelma Steimann. Garnið er 100% lífræn merínóull, u.þ.b. 225 m/100 g í hverri hespu. Frábærlega mjúkt og þægilegt garn til að prjóna úr.
L1: 3 (3) 4 (4) 4 (5) 5
L2: 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1
Prjónar & áhöld
Hringprjónar 4 mm (40/60/80 cm)
Hringprjónar 3,5 mm (40/60 cm) fyrir stroff og hálsmál
5 stk sokkaprjónar 3,5
Nál til að ganga frá endum
10 prjónamerki
Prjóna snúru eða auka garn til að geyma lykkjur.
Prjónfesta
Mundu að athuga prjónfestuna með því að prjóna prufu áður en þú byrjar.
Prjónfesta: 21 L og 29 Umf á hæð í sléttu prjóni með 4 mm prjónum = 10 × 10 cm.
Allir prjóna með mismunandi spennu, svo:
Ef prjónfestan er of þétt og prufan mælist of lítil, skiptu yfir í stærri prjóna.
Ef prjónfestan er of laus og prufan mælist of víð, skiptu yfir í minni prjóna.
Sjá leiðbeiningar um mynstrið í Gott að hafa í huga.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og að mestu leyti í hring. Hálsmálið er prjónað fram og til baka, síðan lokað að framan og prjónað í hring þaðan. Ermarnar eru aðskildar frá bolnum. Hálsmálið er prjónað með því að taka upp lykkjur í kringum opið og prjóna stroff með möguleika á mynstri. Hálsmálið er brotið til að mynda tvöfalt stroff og er saumað niður á röngunni.
Mynstrið á ermum er prjónað með tveimur litum í einu. Sumir eiga erfitt með að halda réttri prjónfestu þegar prjónað er með tveimur böndum samtímis. Ef þú átt í vandræðum með mynstrið, skiptu yfir í stærri prjóna fyrir ermarnar, 4,5 mm gæti hentað.
Það er mjög mikilvægt að nota handlitað garn í mynstrið, það gefur prjóninum meiri dýpt og líf og setur punktinn yfir i-ið. Fyrir aðal litinn mæli ég með að skipta á milli tveggja hespa til að liturinn blandist jafnara. Þegar þú prjónar úr tveimur hespum skiptir þú einfaldlega um hespu í hverri annarri Umf. Hér er gott dæmi ef þú þekkir ekki aðferðina:
https://youtu.be/dVsN8qJ3ZD8?si=aV8DcUSPInbA0IjY
Shipping & Returns
We ship from Copenhagen, Denmark, with care and intention — just like our products.
Shipping within Denmark is 50 DKK and international shipping is 132 DKK.
We offer free shipping on orders over:
• 600 DKK in Denmark
• 1200 DKK internationally
Returns & Refunds
Changed your mind? No problem. Most items can be returned within 14 days of purchase as long as they’re in original condition — unworn, unwashed, with tags intact.
Please note: Made-to-order hand-knitted styles and knitwear patterns are non-refundable.
You’ll receive a refund (excluding shipping) once we’ve received your return and confirmed everything is in good shape. Return costs are your responsibility.



