SMOKYCARDI - Icelandic
Kategori: ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style SMOKYCARDI er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L ) XL
1. Yfirvídd 102
109,5 (117) 124,5 (132)
2. Lengd á bol til handveg
70,5 (77) 80 (85) 87,5
3. Lengd á ermi til handveg
29 (31,5) 34 (34,5) 35
Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott, málin geta breyst eftir að peysan hefur verið þvegin. Hafið í huga að peysan á að vera víð í stærðum en getur verið aðlöguð í máli þegar tölurnar eru saumaðar á.
Hæfni : Byrjendur og lengra komnir
Efni
Handlitað Chunky baby alpaca, 100% baby alpaca ull. Mjúkt og skemmtilegt garn að vinna með. Hver hespa inniheldur 100 m í 100 gr.
Chunky baby : 7 (8) 8 (9) 10
Hringprjónar 40 og 80 cm í 7 mm, auka prjón eða garn til að geyma L. Heklunál nr 6.
Saumnál til að ganga frá endum.
2 x öryggisnælur.
2 x tölur 2,5 cm og saumþráður til að sauma tölurnar á. 2 x prjónamerki.
2x stakir prjónar 7 mm.
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 15 L og prj 16 umf á prj 7 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð neðanfrá og upp með tilheyrandi útaukningu, búkurinn er prjónaður fram og tilbaka. Peysan deilist upp til að opna fyrir handveg og þar eftir er búkurinn prjónaður í þremur hlutum og saumaður saman við axlir. Ermarnar geta verið prjónaðar á tvo vegu þ.e.a.s. Lykkjur við handveg teknar upp og prjónað frá öxlum og að stroffi, eða fitjað er upp fyrir ermum og þær heklaðar/saumaðar á við axlirnar
Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Chunky baby .
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.