MELISSAVEST - Icelandic
Kategori: Hjemmeside, ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style Melissavest er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm)
XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL
1. Yfirvídd (ummál á mitti)
79 (82) 85 (88) 91 (93) 95
2.Lengd á bol
51 (53) 55 (55,5) 56 (56) 56
Málin eru tekin af vesti eftir þvott.
Hæfni: Prjóna slétt og brugðið, auka út og taka saman lykkjur, prjóna í hring, lykkja saman og sækja lykkjur.
Efni
Handlitað Wild Alpaca frá Thelma Steimann, 90% baby suri alpaca & 10% silki frá Thelmu
Steimann. Mjúk og létt garn að vinna með. Hver hespa inniheldur 225 m / 100 gr.
Wild alpakka C1: 2 (2) 2 (3) 3 (3) 3
Hringprjónar 80 / 100 cm 6 mm fyrir vestið
Hringprjónar 80 / 100 cm 5 mm fyrir stroff
Saumnál til að fela enda
Lykkjusnúra eða afgangsgarn til að geyma lykkjur
Prjónamerki
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 14 L og prj
20 umf á prj 6 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Vestið er prjónað neðan frá og upp, að mestu leiti í hring. Þegar opnað er fyrir handvegi er vinnunni deilt upp og vestið prjónað áfram fram og tilbaka. Sama aðferð er notuð þegar hálsmálið er prjónað. Fram-og bakhliðin eru lykkjaðar saman á öxlunum. Lykkjurnar fyrir hálsmálið er sóttar eftir að axlirnar hafa verið tengdar.
Axla Púðarnir eru prjónaðir með því að sækja lykkjur frá handveginum og prjónaður lítill bútur með tvöföldu bandi sem síðar er rúllaður upp og saumaður fastur á röngunni.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.