ANIKACARDIGAN - Icelandic
Kategori: ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style ANIKACARDIGAN er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL
1.Brjóstmál
(120) 125 (129.5) 137.5 (140) 144 (148) 152 cm
2.Lengd, mæld á miðju baki
(46.5) 49.5 (51) 53 (53.5) 53.5 (53.5) 53.5 cm
Peysan er hönnuð til að vera víð, með um það bil 20–30 cm hreyfivídd í minni stærðunum, sem minnkar smám saman í stærri stærðunum.
Kunnátta: Fitja upp, prjóna slétt og brugðið, auka út, taka úr, kantlykkja, kaðlaprjón og fella af.
Garn
Handlitað Kid Silk Mohair frá Thelmu Steimann. Lúxus, burstað garn úr 72% kid mohair og 28% silki. Garnið er létt, einstaklega mjúkt og dásamlegt að prjóna úr. Um 420 m / 50 g.
Kid Silk Mohair: 4/4/4/4/4/5/5/5 dokkur
Prjónar og áhöld
Hringprjónar 6 mm, 40 cm og 80/100 cm
Hringprjónn 6 mm, 40 cm
Hringprjónn 5 mm, 80/100 cm
5 sokkaprjónar, 5 mm
Kaðlaprjónn
Lykkjusnúra eða afgangsgarn til að geyma lykkjur
Prjónamerki
Stoppanál til að ganga frá endum
3 × tölur, 26 mm
Prjónfesta
15 L × 21 umf = 10 × 10 cm í sléttu prjóni með 2 þráðum af Kid Silk Mohair saman á 6 mm prjóna, mælt eftir þvott og blokkun.
Gott að vita
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með raglan-útaukningum. Berustykkið er prjónað fram og til baka og því næst er verkinu skipt upp í bol og ermar. Bolurinn er prjónaður fram og til baka en ermarnar eru prjónaðar í hring. Að lokum eru stroffkantarnir að framan prjónaðir á peysuna.
Lestu uppskriftina alla yfir áður en þú byrjar.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.





