Kategori: ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan Style WINONATOP er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðir XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL)
1.Yfirvídd
76 (81) 86 (91) 96 (101) 107 (113)
2.Lengd frá öxlum og niður
55 (57) 59 (61) 62 (62,5) 63 (63,5)
Uppgefin mál eru tekin af toppnum fyrir þvott. Toppurinn getur stækkað við þvott. Sniðið er aðsniðið og gefur vel eftir eða allt að 15 - 30 cm. Uppskriftin gefur möguleika á að aðlaga toppinn að eigin málum.
Hæfni
Prjóna slétt og brugðið, úrtaka og útaukning, prjóna í hring, lykkja saman og kant lykkja.
Efni
Handlitað Mulberry silki frá Thelma Steimann. Silkið er ótrúlega fallegt og mjúkt garn til að
prjóna með, það gefur fallega glansandi og léttleika í flíkinni. Meðallengd ca 400m / 100 g
í hverri hespu.
Mulberry silki : 1 (1) 2 (2) 2 (2)
Hringprjónar 40 og 60 cm í 3 mm.
2 x sokkaprjóna 3 mm
Saumnál til að fela enda og til að sauma saman axlirnar
Prjónasnúru eða garnaafgang til að geyma lykkjur.
Prjónamerki.
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 27 L , prjónið slétt 38 umf et* 3 L sl, 3 L br* á prj 3 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. Aðlagið prjónastærð til að ná prjónfestu.
Gott að hafa í huga
Toppurinn er prjónaður neðanfrá og upp í hring með 3 x 3 stroffi. Toppurinn er aðsniðin og er prjónaður bæði með úrtöku og útaukningu svo sniðið passi vel við líkamann. Þegar lokið er við bolinn er vinnunni deilt upp í fram-og bakhlið, þar eftir er toppurinn prjónaður fram og tilbaka. Hliðarnar eru svo lykkjaðar saman á öxlunum.
Uppgefið garn er miðað við meðaltal og er þar af leiðandi mismunandi fyrir hvern og einn. Þegar bætt er við eða tekið af uppgefnum málum má reikna með að það hafi áhrif á hversu mikið garn fer í verkefnið.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.