Kategori: ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style NEIKEDSWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (2XL)
1. Yfirvídd
106 (114,5) 123,5 (127,5) 132,5 (137,5)
2. Lengd á bol
51 (54) 57 (58)58,5 (58,5)
3. Lengd á ermum
17 (19) 21 (22,5) 23,5 (23,5)
Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott, málin geta breyst eftir að peysan hefur verið þvegin. Hafið í huga að peysan á að vera víð í stærðum.
Hæfni : Byrjendur og lengra komnir
Efni
Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðal lengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Handlitið silkimohair frá Thelma Steimann, garnið er blanda af burstuðu 72% mohair og 28% silki , meðal lengd ca. 420m/50gr í hverri hespu. Silkimjúk áferð og þægileg ull til að vinna með.
ORGANIC DK : 3 (4) 4 (4) 5 (5)
KID SILK MOHAIR : 2 (2) 2 (3) 3 (3)
Hringprjónar 5,5 mm í 40 & 80 cm fyrir bol og ermar.
Hringprjónar 4,5 mm í 40 fyrir hálsmál.
Saumnál, 8 x prjónamerki.
2 x stórar öryggisnálar eða þráður til að geyma ermarnar.
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 16 L og prj 21 umf á prj 5,5 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð frá hálsmáli og niður með tvöföldum þræði, fitjað er upp fyrir hálsmálinu og þar eftir aukið út fyrir axlir. Peysan er svo opnuð fyrir handveg, þar sem bolurinn og ermarnar eru prjónuð í sitthvoru lagi.
Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Organic Merino DK með Kid Silk Mohair.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.