Kategori: Hjemmeside, ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style LOGOSCARF er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærð Ein stærð
Mál (cm)
Lengd: 75
Breidd: 165
Mál eru tekin eftir þvott og blokkningu.
Hæfni: Slétt prjón, útaukningar, úrtökur, kantlykkja og slá upp lykkjur.
Efni
Handlitað Mulberry Silk frá Thelmu Steimann. Silkið er einstaklega mjúkt, dásamlegt að prjóna úr og gefur flíkinni fallegan gljáa og léttleika. Um það bil 400 m / 100 g í hverri hespu.
Mulberry Silk: 1 hespa
Hringprjónn 3 mm, 80–100 cm
Saumnál
Prjónamerki
Prjónfesta
Mælt er með að prjóna prufu áður en hafist er handa. Fitjið upp 30 lykkjur á 3 mm prjóna. Fyrstu 3 umferðirnar mynda kant: Brugðið á röngunni og slétt á réttunni. Núna hefst mynsturprjónið, byrjið á réttunni og prj áfram:
Réttan: Prj 3 kantlykkjur, *sláið upp á prjón, prj 2 sl saman,* endurtakið frá * til * þar til 3 lykkjur eru eftir, prj 3 kantlykkjur.
Rangan: Brugðið allar lykkjur.
Endurtakið þessar tvær umferðir þar til alls hafa verið prjónaðar 25 umferðir. Síðustu 3 umferðirnar eru unnar sem kantur, brugðið á röngunni og slétt á réttunni. Þvoið og blokkið prufuna. Mælið 10 × 10 cm svæði án kantlykkjanna.
Prjónfesta er mismunandi eftir einstaklingum. Ef prufan er minni en gefið er upp skal nota stærri prjóna. Ef hún er stærri skal nota minni prjóna.
Prjónfestan er ekki sérstaklega mikilvæg í þessari hönnun, en hún hefur áhrif á endanlega stærð sjalsins. Ef annað garn er notað en mælt er með, er sérstaklega mikilvægt að prjóna prufu. Ef notað er Mulberry Silk frá Thelmu Steimann gæti þurft að rekja prufuna upp aftur þar sem uppskriftin notar nánast alla hespuna.
Gott að vita
Sjalið er prjónað fram og til baka frá neðan frá og upp með útaukningum á báðum hliðunum. Lógóið er unnið eftir mynsturbekk.
Garnmagnið er áætlað út frá meðaltali og getur því verið breytilegt.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.



