Kategori: Hjemmeside, ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style HELENA HACK VEST/SWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir: XS (S) M (L) XL (XXL)
Yfirvídd: 105 (112) 119 (126) 133 (140) cm
Sídd að öxl: 56.5 (60) 64 (65) 65 (65) cm
Helena vestið er hannað með um það bil 25–35 cm hreyfivídd, sérstaklega í minni stærðunum, en hreyfivíddin minnkar smám saman í stærri stærðunum. Hreyfivídd segir til um hversu mikið stærra vestið er en brjóstmál líkamans. Allar mælingar miðast við flíkina eftir þvott.
Hæfni: Slétt og brugðið prjón, lykkjur teknar upp, uppsláttur, útaukningar og úrtökur, lykkja saman, kaðlaprjón.
Efni
Handlitað Chunky Baby Alpaca, 100% baby alpaca ull frá Thelmu Steimann.
Mjög mjúkt og dásamlegt garn að prjóna úr. Hver hespa: 100 m / 100 g
Chunky Baby Alpaca: 6 (6) 7 (7) 8 (9) hespur
& fyrir ermar:
Chunky Baby Alpaca: 2 (2) 3 (3) 3 (3) hespur
2 leðursmellur frá Striksakken til að festa ermarnar.
Prjónar og aukahlutir
Hringprjónar 6 mm (40/80/100 cm)
Hringprjónar 4,5 mm (40 cm)
Aukaprjónn/sokkaprjónn eða kaðlaprjónn fyrir kaðla
Prjónamerki
Saumnál til að ganga frá endum og sauma axlir
Hjálparband eða afgangaþráður til að geyma lykkjur
Prjónfesta
Athugið alltaf prjónfestu áður en byrjað er.
Fitjið upp 15 lykkjur og prjónið 2 sl, 2 br í 16 umferðir á 6 mm prjóna til að gera 10 × 10 cm prjónfestuprufu. Þvoið og mótið prufuna.
Ef prjónfestan er of þétt, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan er of laus, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að vita
Þessi uppskrift er samstarf milli Thelmu Steimann og Striksaken.
Helena Hack Vest er blanda af vesti og peysu.
Vestið er prjónað neðan frá og upp í hring að handvegum. Þaðan er prjónað fram og til baka. Fylgið teikningunum í gegnum uppskriftina og aðlagið eftir stærð. Framstykkið er opnað fyrir hálsmáli og mótað með úrtökum og síðar útaukningum, áður en það er tengt við bakstykkið með lykkjað saman. Hálsmálið er prjónað í stroffi í hring, með köðlum eins og sýnt er á teikningu. Lykkjur eru teknar upp meðfram hvorum handvegi og prjónaðar í stroffi í hring.
Ermarnar eru prjónaðar í hring eftir teikningu. Ermarnar eru valfrjálsar og hægt er að festa þær við vestið með leðursmellum frá Strikksaken.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.





