Kategori: Hjemmeside, ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style TARASWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir
(XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL
1.Yfirvídd
(106) 110 (120) 124 (132) 136 (142) 146
2.Lengd mæld frá miðju baki og niður:
(58) 59 (60) 61 (62) 63 (63) 63
Peysan er hönnuð með víðu sniði, með u.þ.b. 20–30 cm hreyfivídd í minni stærðunum, sem minnkar smám saman í stærri stærðunum.
Aðferðir : Uppfitjun, prjónað í hring, brugðið, útaukningar, úrtökur, þýskar stuttar umferðir og affelling.
Garn
Handlitað Kid Silk Mohair frá Thelma Steimann. Lúxus burstað garn er úr 72% kid mohair og 28% silki. Létt, einstaklega mjúkt og dásamlegt að prjóna úr. U.þ.b. 420 m / 50 g.
Kid Silk Mohair: 4/4/5/5/5/5/6/6 dokkur
Litur 1: 2
Litur 2: 1
Litur 3: 2
Eða:
U.þ.b. (200–250) 200–250 (200–250) 250–300 (250–300) 300–350 (300–350) 300–350 g fyrir afgangaútgáfu eða einlita útgáfu.
Kögur: u.þ.b. 30 g Kid Silk Mohair.
Áhöld og fylgihlutir
Hringprjónar 10 mm, 40 cm og 80/100 cm
Hringprjónn 7 mm, 40 cm
5 sokkaprjónar 7 mm
2 prjónastopparar
Prjónamerki
Nál til að ganga frá endum
Heklunál nr. 7 (valfrjálst)
Bursti eða peysukambur til að bursta upp hárin (valfrjálst)
Prjónfesta
Mikilvægt er að athuga prjónfestu áður en byrjað er.
Fitjið upp 10 lykkjur með 4 þráðum af Kid Silk Mohair og prjónið 13 umferðir á 10 mm prjóna fyrir 10 x 10 cm prufu.
Gott að vita
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með raglanútaukningum. Berustykkið er fyrst prjónað fram og til baka, síðan er það tengt saman við hálsmálið og prjónað áfram í hring. Síðar er berustykkinu skipt í bol og ermar, sem eru prjónuð hvort í sínu lagi. Mælt er með því að byrja á hálsmálinu og síðan ermunum eftir að búið er að skipta berustykkinu. Þannig er auðveldara að láta litaskiptin verða samstillt í ermunum ef unnið er með ombré eða afgangaútgáfu, og leyfa litunum og garninu að fjara út í bolnum.
Um mismunandi útgáfur
Peysuna má vinna á þrjá mismunandi vegu:
Einlit // Afganga// Ombré
Ef unnið er með ombré-útgáfuna skal fylgja leiðbeiningunum í uppskriftinni um hvenær á að skipta um liti. Ef unnið er með einlita útgáfu eða afgangaútgáfu skal hunsa litaskiptaleiðbeiningarnar, en fylgja áfram fjölda banda í uppskriftinni.
Um mimsunandi frágangs útgáfur
Það eru nokkrar leiðir til að klára peysuna:
Hafa hana eins og hún er // Bæta við kögri // Bursta mohairið upp fyrir loðna áferð
Þú getur blandað þessum frágangsaðferðum eins og þú vilt.
Ef þú velur að bursta mohairið upp er mælt með því að bursta aðeins þá hluta sem eru prjónaðir með 4 eða fleiri þráðum, til dæmis bolinn.
Mælt er með því að vinda garnið í kökur svo hægt sé að nota bæði þráðinn utan af kökunni og innan úr henni. Eftir því sem peysan verður þykkari þarf að hafa fleiri þræði aðgengilega í einu. Skiptið garninu sem á að nota í bolinn í að minnsta kosti 2–3 kökur svo nægilega margir þræðir séu tiltækir við affellingu.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.








