Kategori: Hjemmeside, ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style LYDIASWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL (4XL)
1.Ummál yfir brjóst:
104 (116) 127 (132) 139 (141) 144 (150) cm
2. Lengd mæld aftan á miðju baki án hálsmáls:
49 (50) 51 (51.5) 51.5 (51.5) 51.5 (51.5) cm
Lydiasweater er hönnuð með u.þ.b. 25–35 cm af yfirvídd í minni stærðum, sem minnkar smám saman í stærri stærðum. Allar mælingar miðast við fullunnið verk eftir þvott. Lengdin inniheldur ekki brotið hálsmál.
Tækni: Slétt prjón, brugðið prjón, útaukningar, úrtökur, slá upp lykkjur og þýskar stuttar umferðir.
Efni
Handlitað Kid Silk Mohair frá Thelmu Steimann: 64% kid mohair og 36% silki, burstað einfalt garn með 420 m / 50 g hespum.
Kid Silk Mohair: 2 (2) 2 (3) 3 (3) 3 (3)
Hringprjónar 40 cm og 80/100 cm í 4,5 mm fyrir peysuna
Hringprjónar 40 cm og 80/100 cm í 4 mm fyrir stroff
Stoppunarnál til að ganga frá endum
Prjónasnúra eða afgangsgarn fyrir að geyma lykkjur
Prjónamerki
Heklunál nr. 3 (ekki nauðsynleg)
Prjónfesta
18 lykkjur × 26 umferðir = 10 × 10 cm á 4,5 mm prjónum í sléttu prjóni.
Mikilvægt er að athuga prjónfestu áður en hafist er handa.
Gott að vita
Peysan er prjónuð ofan frá og niður. Hálsmálið er fyrst prjónað fram og til baka og síðan tengt í hring. Berustykkið er mótað með raglan útaukningum. Bolur og ermar eru síðan aðskilin og prjónuð sitt í hvoru lagi. Þýskar styttur umferðir eru prjónaðar á bolnum til að mynda lengra bakstykki. Hálsmálið er klárað með því að taka upp lykkjur og brjóta það tvöfalt.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.






