DUNACARDIGAN - Icelandic
Kategori: ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style DUNACARDIGAN er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (XXL)
1. Yfirvídd
91 (94) 97 (100) 103 (106)
2. Lengd á bol
44,5 (48,5) 51,5 (53,5) 55 (56,5)
3. Lengd á ermum til handveg
50 (50) 51 (52) 52 (52)
Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott, málin breytast eftir að peysan hefur verið þveginn. Farið eftir leiðbeiningum í frágangi og mælt er með því að sannreyna prjónfestu til að yfirsýn yfir hvaða stærð hentar hverju sinni.
Hæfni : Meðal þekking
Efni
Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Organic merino DK : 4 (5) 5 (5) 6 (6)
Hringprjónar 4 mm í 80 cm og 40 cm
Hringprjónar 3,5 mm fyrir stroff á bol
5 x sokkaprjónar 3,5 mm fyrir stroff á ermum
5 x sokkaprjónar 4 mm fyrir vasa og líningu á bol
Saumnál til að fela enda
8 x Prjónamerki
4 x Stórar öryggisnælur eða afgangsgarn
6 x tölur 2 cm & 1 x tala 1 cm
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu.
Fitjið upp 20 L á prjóna 4 mm og prjónið klukkuprjón (án uppsláttar)
1 umf: prj allar L slétt.
2 umf: 1 L slétt, et ; 1 L brugðin, prjónið 1 L slétt í lykkjuna undir næstu lykkju.
3 umf: 1 L slétt, et; prjónið 1 L slétt í lykkjuna undir næstu lykkju, 1 L brugðin.
Endurtakið umf 2 & 3 eða þar til 35 umf fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. Þvoið prjónfestuna og leggið til þerris, prjónfestan ætti að stækka um 2 cm við þvott, þ.e.a.s. 12 x 12 cm.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með klukkuprjóni. Berustykkið er prjónað frá réttunni og röngunni. Peysunni er deilt upp við handveg og lykkjurnar sem tilheyra ermunum eru geymdar á meðan bolurinn er prjónaður áfram niður frá réttunni og röngunni. Peysan er opnuð fyrir vösum á hvorri hlið og vasarnir eru prjónaðir eftir að bolurinn hefur verið prjónaður. Bæði stroffið á bolnum og ermunum er prjónað með klassísku sléttu og brugðnu stroffi. Ermarnar eru prjónaðar í hring með klukkuprjóni, hafið í huga að klukkuprjónið er prjónað á annan hátt þegar prjónað er í hring. Listinn fyrir vasa, hálsmál og tölurnar, er prjónaður eftir að peysan sjálf hefur verið prjónuð. Listinn fyrir tölur er prjónaður með tvöföldu prjóni, þ.e.a.s fram-og bakhlið er prjónað hvert fyrir sig, en samtímis og lykkjurnar færðar yfir á prjónin óprjónaðar fyrir hverja hlið. Listinn er prjónaður yfir á peysuna með því að prjóna kant lykkjuna á peysunni saman með listanum og opnað er fyrir hnappagöt á hægri listanum.
Lesið vel í gegnum uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast hjálparvideo inná heimasíðunni www.thelmasteimann.com til að sjá hvaða aðferðir eru notaðar hverju sinni. Myndefnið liggur inn á heimasíðunni undir DUNAVEST.
Magn af garni er miðað við meðaltal og er þar af leiðandi mismunadi fyrir hvern og einn. Hægt er að prjóna peysuna með hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Organic DK.
Forsendelse & Returnering
Vi sender fra København, Danmark, med omhu og hensigt – ligesom vores produkter.
Fragt inden for Danmark er 50 DKK og international fragt er 132 DKK.
Vi tilbyder gratis fragt på ordrer over:
• 500 DKK i Danmark
• 800 DKK internationalt
Returneringer og tilbagebetalinger
Har du skiftet mening? Intet problem. De fleste varer kan returneres inden for 14 dage efter købet, så længe de er i original stand - ubrugte, uvaskede, med tags intakte.
Bemærk venligst: Håndstrikkede styles og strikmønstre kan ikke refunderes.
Du modtager en refusion (ekskl. forsendelse), når vi har modtaget din retur og bekræftet, at alt er i god stand. Returneringsomkostninger er dit ansvar.