top of page
EILISHSWEATER

Íslenska útgáfan

 

Style EILISHSWEATER er prjónauppskrift.

 

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Stærðartafla

 

Stærðir (cm)  XS (S) M (L)  XL  (2XL)    

1. Yfirvídd                             

92 (96) 102 (108) 116 (126) 

2. Lengd á bol                                     

48 (50) 52 (54) 56 (58)

3. Lengd á ermum til handveg                               

46,5 (47) 47,5  (48) 48  (48)

 

Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott, málin geta breyst eftir að peysan hefur verið þvegin. Hafið í huga að peysan á að vera víð í stærðum.

 

Hæfni : Byrjendur og lengra komnir

 

Efni

 

Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðal lengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

 

ORGANIC DK : 4 (5) 5 (5) 6 (6)

 

Hringprjónar 4 mm í 40 & 80 cm.

Hringprjónar 3,5 mm in 40 cm.
5 x sokkaprjónar 3,5 mm.

Saumnál og prjónamerki.

Heklunál.

2 x stórar öryggisnálar eða afgangsgarn til að geyma ermarnar

 

Prjónfesta

 

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 21 L og prj 29 umf á prj 4 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga

 

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fitjað er upp fyrir hálsmálinu og þar eftir er aukið út fyrir berustykkinu. Peysan er svo opnuð upp við handveg, þar sem bolurinn og ermarnar eru prjónuð í sitthvoru lagi í hring.

 

Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Organic Merino DK .

EILISHSWEATER

kr60.00Price

    YOU MIGHT ALSO LIKE

    bottom of page